- Nánari upplýsingar
DEWALT BLACK & GOLD STÁLBORASETT Í TOUGHCASE
Sterkt 19 hluta stálborasett úr HSS-G stáli sem hentar vel til að bora í málm, við og plast. Borarnir eru hannaðir með styrktum kjarna sem dregur úr hættu á að þeir brotni, og sérstöku skafti með þremur flötum hliðum sem tryggir að borinn renni ekki í patrónunni við mikið álag. Settið kemur í sterkri ToughCase plastöskju sem hægt er að stafla og festa saman við aðrar DeWalt kerfistöskur.
Helstu eiginleikar:
- Nákvæmur oddur (Speed Tip): Borinn miðjar sig sjálfur og byrjar strax að bora án þess að renna til, jafnvel á bognum flötum.
- Styrktur kjarni (Toughcore): Þykkari kjarni eykur styrk borsins og lágmarkar hættuna á að hann bogni eða brotni við álag.
- Flatt skaft (No Spin Shank): Þrjár flatar hliðar á skaftinu koma í veg fyrir að borinn snúist í patrónunni við mikið átak.
- ToughCase geymslubox: Sterk og meðfærileg askja með glæru loki svo auðvelt er að sjá innihaldið. Hægt er að festa hana saman við aðrar ToughCase öskjur eða TSTAK kerfistöskur með viðeigandi festingum.
Tæknilegar upplýsingar:
- Framleiðandi: DeWalt
- Módel / Gerð: DT70728-QZ
- Fjöldi borar: 19 stk.
- Efni: HSS-G (High Speed Steel)
- Stærðir í setti: 1mm, 1,5mm, 2x2mm, 2x2,5mm, 2x3mm, 2x3,5mm, 2x4mm, 2x5mm, 5,5mm, 6mm, 7mm, 8mm og 10mm
- Skaftgerð: Þrjár flatar hliðar (No Spin Shank)
- Geymsla: Small ToughCase (samhæft við TSTAK kerfið)