Vörunúmer: 5085183

Sláttuvél 18V 51cm AL-KO 51.6 Li SP Comfort 2x4.0Ah

Uppselt í verslunum
Sláttuvél 18V 51cm AL-KO 51.6 Li SP Comfort 2x4.0Ah
|
Smelltu á boxin til að stækka myndirnar

Vörunúmer: 5085183

Sláttuvél 18V 51cm AL-KO 51.6 Li SP Comfort 2x4.0Ah

Öflug og fjölhæf rafmagnssláttuvél með 51 cm sláttubreidd og 4-í-1 virkni sem hentar fyrir allt að 800 m² garða. Vélinni fylgja tvær 4 Ah hleðslurafhlöður og tvöfalt hleðslutæki, sem tryggir hámarks afköst og langan vinnutíma. Sjá nánar
Er varan til í verslun nálægt þér?
 Uppselt
Akranes, Akureyri, Borgarnes, Egilsstaðir, Fagmannaverslun og timbursala, Grafarholt, Hafnarfjörður, Hvolsvöllur, Höfn í Hornafirði, Ísafjörður, Reykjanesbær, Selfoss, Skútuvogur (allar vörur nema timbur), Vefverslun, Vestmannaeyjar

124.900 kr.
14 daga skilaréttur er á öllum vörum.

Viltu dreifa greiðslum?

Skrifaðu skilaboð á kortið

1 af 1

Nafn móttakanda

400 stafir eftir Staðfesta Hætta við
  • Nánari upplýsingar

AL-KO 51.6 Li SP Comfort

AL-KO 51.6 Li SP Comfort er öflug og hljóðlát rafmagnssláttuvél sem skilar framúrskarandi árangri án útblásturs. Vélin er búin 4-í-1 virkni sem gerir þér kleift að slá, safna í körfu, tæta (mulching) eða nota hliðarkast, sem er sérstaklega hentugt ef grasið hefur fengið að vaxa mikið. Með 51 cm sláttubreidd og drifi á afturhjólum er slátturinn léttur og skilvirkur, jafnvel í stærri görðum eða mótbrekkum. Vélin nýtir hið sveigjanlega 18V / 36V rafhlöðukerfi AL-KO og er búin kolalausum mótor sem tryggir langan líftíma og meiri snerpu.

Helstu eiginleikar:

  • 4-í-1 virkni: Sláttur, söfnun, tæting (mulching) og hliðarkast í einu tæki.
  • Kolalaus mótor: Skilar meiri skilvirkni, lengri vinnutíma á hverri hleðslu og krefst nánast ekkert viðhalds.
  • Sjálfkeyrandi: 1-gírs drif á hjólum auðveldar vinnuna og sparar orku notandans.
  • LED hleðsluvísir: Innbyggður skjár á handfangi sýnir stöðu rafhlöðunnar á meðan unnið er.
  • Vönduð smíði: Sláttuhús úr sterku stáli og stór hjól með kúlulegum tryggja góða aksturseiginleika og endingu.
  • Plásssparandi: Handfangið er samanbrjótanlegt sem auðveldar geymslu og flutning.

Tæknilegar upplýsingar:

  • Framleiðandi: AL-KO
  • Gerð: Comfort
  • Sláttubreidd: 51 cm
  • Slátthæð: 25 - 75 mm (6 þrep, miðlæg stilling)
  • Rafhlaða: 2x 4 Ah (fylgja með)
  • Rafhlöðukerfi: AL-KO 18V / 36V (1 Battery - 2 Voltages)
  • Vinnusvæði: Allt að 800 m²
  • Safnkassi: 60 lítrar með fyllingarvísi
  • Drif: Já, 1-gírs (u.þ.b. 3 km/klst)
  • Hús: Stál
  • Þyngd: 30,7 kg
  • Hljóðstyrkur: 95 dB(A)

Stuðningsvörur