![](/media/73140/husa_sendum-samdaegurs5.jpg)
Heimsending - Höfuðborgarsvæðið að undanskildu Kjalarnesi
- Alla virka daga
- Pöntun þarf að berast fyrir kl. 14:00 á afhendingardag annars er hún afgreidd næsta dag.
- Verð 1190 kr á almennun verslunarvörum.
- Ath að vörur eru aðeins keyrðar heim að dyrum.
- Byggingavörur, s.s. timbur, plötur, flísar, múrblöndur o.fl. reiknast á hærra flutningsverði en almennar verslunarvörur sökum þyngdar eða stærðar vörunnar.
![](/media/73135/husa_sendum-samdaegurs6.jpg)
Pantað & sótt í verslunum um land allt
- Hægt er að sækja samdægurs á höfuðborgarsvæðinu í verslun okkar í Skútuvogi alla virka daga ef pantað er fyrir klukkan 14:00
- Pantað & Sótt pantanir á landsbyggðinni eru tilbúnar til afgreiðslu eftir 2-4 virka daga. Þær eru teknar til í vefverslun og síðan sendar með okkar flutningakerfi í þína verslun.
- Við sendum þér tölvupóst þegar þú getur sótt vöruna.
- Vörur skal sækja á þjónustuborð í Húsasmiðjunni í Skútuvogi.
- Stór heimilistæki og grill eru í sumum tilfellum sótt í vöruhús í Holtagörðum.
- Framvísa skal kvittun þegar pöntun er sótt.
- Sjá afgreiðslutíma Húsasmiðjunnar í Skútuvogi hér.
![](/media/73140/husa_sendum-samdaegurs5.jpg)
Heimsendingar - Landsbyggðin
- Afhendingartími 2-4 virkir dagar
- Þú færð vöruna senda heim að dyrum. Aðeins í boði þar sem Pósturinn býður upp á heimkeyrslu annars er vara flutt á næsta pósthús.
- Ef pöntun berst eftir kl. 13:00 er hún send næsta virka dag.
- Ef móttakandi er ekki heima þegar sending berst er sending flutt á næsta pósthús.
- Þú færð sms þegar varan er á leiðinni til þín.
- Nánari upplýsingar um heimsendingarþjónustu og skilmála Póstsins er að finna á www.postur.is
![](/media/73139/husa_sendum-samdaegurs7.jpg)
Timbursendingar á höfuðborgarsvæðinu
Hægt er að kaupa timbur, plötur, pallaefni o.fl. í vefverslun og fá það heimsent. ATH: Gildir ekki um kaup úr verslun. Sendum aðeins innan höfuðborgarsvæðisins. Fast verð fyrir akstur úr vefverslun á Höfuðborgarsvæðinu 12.900 kr.
![](/media/73137/husa_sendum-samdaegurs4.jpg)
Blómasendingar Blómavals
Vinsamlega athugið, við sendum eingöngu blómvendi, blómaskreytingar o.þ.h. þar sem verslanir Blómavals eru. EKKI ER HÆGT að afhenda blómasendingar á landsbyggðinni á sunnudögum því verslanir Blómavals á landsbyggðinni eru lokaðar á sunnudögum.
Mánudaga til föstudaga eru blómapantanir keyrðar út þrisvar á dag og þarf pöntun að berast fyrir þann tíma.
Laugardaga er keyrt út tvisvar sinnum, milli 11:00-13:00 og 15:00-17:00. Sunnudaga er keyrt út klukkan 17:00
Útfarablóm og kransar eru keyrðir út á þeim tíma sem óskað er eftir. Vinsamlega setjið nákvæma dagsetning og tíma í athugasemd þegar pantað er.