Græn vara - hvað merkir það hjá okkur?
Húsasmiðjan býður upp á eitt mesta úrval landsins af umhverfisvænum byggingavörum og vörum sem nota má í vistvænar byggingar. Í vefverslun eru allar umhverfisvænar og umhverfisvottaðar vörur sérmerktar með grænum borða sem við köllum "Græn vara". Einnig merkjum við vörur "Græn vara " þegar hún er leyfð til notkunar í vistvænar byggingarog í matvælaiðnaði, er endurunnin, orkusparandi o.fl. Þegar smellt er á "Græna vöru" í vefverslun má sjá nánar hvaða vottun er til staðar á vörunni eða hvort nota má vöruna í tiltekið verkefni.
Þetta auðveldar þér að finna umhverfisvænar vörur s.s. Svansmerktar vörur, timbur úr sjálfbærum skógum, orkusparandi eða endurunna vörur o.fl. Hafa skal í huga að ekki eru allar "Grænar vörur" umhverfisvottaðar en mega t.d. notast í vistvænar byggingar og fá því merkinguna "Græn vara". Grænu vörurnar okkar skipta hundruðum í vefverslun og þeim fer fjölgandi.
Kynntu þér umhverfsstefnu okkar hér
Upplýsingar um umhverfismerki sem við notumst við
Til eru margar mismunandi tegundir umhverfisvottana fyrir byggingar en almennt má segja að markmiðin með notkun þeirra séu að:
- Auka gæði bygginga
- Draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum
- Byggja heilnæmar og öruggar byggingar
- Draga úr rekstrarkostnaði
FSC
FSC er alþjóðleg vottun sem tryggir að timbrið komi úr sjálfbærum skógum og stuðli þannig að verndun skóga og dýra. FSC tryggir að vist- og lífkerfi skógarins sé viðhaldið, að plantað sé umfram það sem er nýtt í vörur. FSC-merkið er notað á timbur og vörur sem unnar eru úr viði, s.s. húsgögn og pappír. Merkið er til marks um að viðurinn sem varan er unnin úr sé upprunnin úr skógum sem stjórnað er með sjálfbærum hætti.
FSC vottun
PEFC
PEFC er umhverfismerki, svipað FSC-merkinu og staðfestir að hráefnið eigi uppruna í sjálfbærri skógrækt í samræmi við reglur þessara stofnana, sem í aðalatriðum gera strangar kröfur til uppruna og rekjanleika efnisins. Það er ekki rekið í hagnaðarskyni og setur viðmið um ábyrga skógrækt. Vottunin verndar líffræðilega mikilvæg skóglendi og tryggir samfélagslega- og efnahagslega hagkvæma skógrækt.
PEFC vottun
BREEAM
BREEAM stendur fyrir British Research Establishment Environmental Asessment Method og er matskerfi sem upprunalega var þróað og notað í Bretlandi. Nú eru 200.000 BREEAM vottaðar byggingar í heiminum og um ein milljón bygginga eru í vottunarferli. Lang flestar vottaðar byggingar eru í Bretlandi, en útbreiðsla BREEAM utan Bretlands fer ört vaxandi. Hér á landi eru 14 byggingar í vottunarferli skv. BREEAM vottunarkerfinu.
Svanurinn
Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna. Í dag fást vörutegundir merktar Svaninum í um 70 mismunandi vöruflokkum, s.s. hreinsiefni, húsgögn, byggingavörur, rafhlöður og pappír en einnig er hægt að Svansmerkja starfsemi fyrirtækja, s.s. prentþjónustu, hótel og stórmarkaði.
Leyfilegt í Svansvottað hús
Þetta merki er eitt af Grænu merkjunum okkar og þýðir að vara er leyfð í Svansvottuð hús þó svo hún sé ekki með neina vottun á bak við sig. 1. Upplýsingum um vöru var skilað inn til Svansins í samræmi við gildandi byggingarviðmið (nýbyggingar og endurbætur) og er samþykkt til notkunar í verkefnum sem vinna eftir þeim viðmiðum. Varan er ekki Svansvottuð 2. Varan er samþykkt vara í SCDP í samræmi við gildandi byggingarviðmið (nýbyggingar og endurbætur).
Evrópublómið:
Blómið er opinbert umhverfismerki Evrópu-sambandsins. Í dag fást vörutegundir merktar Blóminu á evrópska efnahagssvæðinu í um 26 vöruflokkum. Meðal þeirra eru tölvur, jarðvegsbætir, málning og lakk, textílefni, ljósaperur og skór.
Blái Engillinn
Blái Engillinn er opinbert umhverfismerki Þýskalands og eitt elsta umhverfismerki í heimi. Vörur og þjónusta í tæplega 200 vöruflokkum fást merktar með Bláa Englinum. Þar á meðal eru allflestar gerðir neysluvara, allt frá pappírsvörum og hreinlætisefnum til húsbúnaðar, gólfefna og tölvu- og skrifstofubúnaðar.
EPD
Umhverfisyfirlýsing vöru er íslenska þýðingin á ,,Environmental Product Declaration” eða EPD. Umhverfisyfirlýsing vöru er skjal sem gefur staðfestar upplýsingar um umhverfisáhrif yfir vistferil (líftíma) vörunnar. Yfirlýsingin er staðfest af þriðja aðila sem gerir óháða úttekt á greiningunni.
OEKO TEX
OEKO-TEX® Standard 100 er alþjóðlegur staðall fyrir samræmdar prófanir og vottun á textílvörum á öllum stigum framleiðslunnar. Vottunin byggir á prófunum á skaðlegum efnum, efnum sem vitað er að geta haft skaðleg áhrif á heilsu, sem og efnum sem falla undir varúðarreglur samkvæmt alþjóðlegum viðmiðunarmörkum um heilsuvernd.
PEP ecopassport
PEP ecopassport er alþjóðlegt viðmiðunarforrit fyrir umhverfisyfirlýsingar vöru (EPD) fyrir rafmagns-, rafeinda- og hita- og kæliiðnað. Yfirlýsingarnar sem verða til samræmast stöðlunum ISO 14025 og ISO 14040 og eru jafnframt í samræmi við EN 15804.
GEV - EMICODE
The EMICODE® classification system allows to compare and evaluate the emission characteristics of flooring installation and construction products and at the same time gives an incentive to further improve the products.
Leyfilegt í matvælaiðnað
EMICODE® flokkunarkerfið gerir kleift að bera saman og meta losunareiginleika vara sem notaðar eru við gólfísetningar og byggingarframkvæmdir, jafnframt því sem það hvetur til áframhaldandi umbóta á vörunum.
Bio
BIO merkið (Bio-Siegel) er opinbert merki Þýskalands fyrir lífræna ræktun. Til að matvara fái að nota BIO-merkið þarf hún að innihalda a.m.k. 95% lífrænt ræktuð matvæli.
Hér eru nokkur myndbönd sem fjalla um nokkrar algengar umhverfisvottanir
Í nútíma samfélagi verður krafa um gagnsæi í samfélaginu ávalt háværari. EPD hjálpar til við að byggja upp gagnsæi og eykur traust á því að umhverfisyfirlýsingar frá framleiðenda séu réttar. Myndböndin hér að neðan útskýra vel hvað felst í umhverfisyfirlýsing vöru (EPD) og hver meginmarkmið Stiga eru.