María Horgen, alþjóðlegur litastjóri Jotun og LADY, heldur fyrirlestur í fyrsta sinn á Íslandi

María Horgen opnar dyrnar að heimi litanna og sýnir hvernig eitt stærsta málningarfyrirtæki Evrópu þróar árlega litapallettur sínar fyrir innan- og utanhússmálningu. Hún fer yfir ferlið frá hugmynd að lokaútkomu.

Viðburðurinn er sérstaklega ætlaður þeim sem vinna með rými og útlit, svo sem arkitektum, innanhússarkitektum, hönnuðum, stílistum, málurum og öllum þeim sem hafa áhuga á litum og því hvernig þeir móta stemningu, upplifun og heildarmynd rýmis.
Athugið takmarkað sætaframboð, skráning er nauðsynleg. 
Skrá hér

Hvar : Sykursalurinn, Grósku - Bjargargötu 1
Hvenær : 9. apríl kl. 15-17

Viðburðurinn er í boði Húsasmiðjunnar og Jotun, aðgangur ókeypis en skráning nauðsynleg.

Alþjóðlegur litastjóri Jotun til Íslands: Litir sem móta líðan, rými og lífsstíl

Þann 9. apríl næstkomandi fá Íslendingar einstakt tækifæri til að kynnast því hvernig litir móta ekki aðeins heimili okkar heldur einnig líðan, upplifun og daglegt líf – þegar María Horgen, nýr svæðisbundinn litastjóri Jotun fyrir Evrópu og Mið-Asíu, heldur fyrirlestur í Sykursalnum í Grósku.

María er ein fremsta rödd Norðurlanda á sviði litahönnunar og leiðir þróun litapalletta hjá einu stærsta málningarfyrirtæki heims. Hún hefur yfir áratug af reynslu í litráðgjöf, kennslu og hönnun, og hefur meðal annars kennt litafræði, unnið að fjölbreyttum innanhússverkefnum og verið meðhöfundur bókarinnar Dusty – Tidløse fargevalg.

„Litir hafa einstaka getu til að hafa áhrif á tilfinningar okkar,“ segir María. „Þeir geta róað okkur, gefið orku eða skapað hlýju – sérstaklega á tímum þegar dagsbirta er takmörkuð.“

Í fyrirlestrinum Samspil lita og upplifunar mun hún opna fyrir á bak við tjöldin ferli Jotun – hvernig litir verða til, hvernig þeir eru valdir og hvernig þeir eru settir saman til að skapa heildræna upplifun rýma. Þar spila saman straumar í samfélagi, menningu, arkitektúr og mannlegri hegðun.

Litir sem skapa heimili með sál

María leggur sérstaka áherslu á að litir séu ekki bara fagurfræði – heldur verkfæri til að móta lífsgæði. Hún talar fyrir því að fólk þori að treysta eigin innsæi í litavali og skapa rými sem endurspegla persónuleika og lífsstíl.

Þessi nálgun endurspeglast skýrt í nýju litakorti Jotun, Soulful Spaces, sem María mun kynna sérstaklega á viðburðinum. Litakortið byggir á 24 vandlega völdum litum sem eru hannaðir til að bæði róa og örva – og skapa jafnvægi í nútímalegu lífi.

Litunum er skipt í þrjú þemu sem endurspegla mismunandi stemningar og þarfir:

  • dýpt og tímaleysi með ríkum, djúpum litum
  • ró og kyrrð með mjúkum, náttúrulegum tónum
  • léttleika og gleði með hlýjum og líflegum litum

Í litakortinu kemur skýrt fram hvernig rétt samspil lita og áferðar getur umbreytt rými – frá því að skapa hlýja, innileika og nostalgíu yfir í róandi, minimalíska fagurfræði eða bjarta og lifandi stemningu.

„Markmiðið er ekki bara að skapa fallegt heimili,“ segir María, „heldur heimili sem styður við líðan og daglegt líf.“

Sjaldgæft tækifæri fyrir fagfólk

Viðburðurinn er sérstaklega ætlaður arkitektum, innanhússarkitektum, hönnuðum, stílistum og málurum – en einnig öllum þeim sem hafa áhuga á áhrifum lita á rými og fólk.

Að sögn skipuleggjenda, Húsasmiðjunnar og Jotun, er þetta einstakt tækifæri til að fá beina innsýn frá sérfræðingi sem mótar litastefnu á alþjóðavísu – innsýn sem sjaldan er aðgengileg á Íslandi.

Takmarkað sætaframboð – skráning nauðsynleg

Viðburðurinn fer fram 9. apríl kl. 15–17 í Sykursalnum í Grósku, og eru léttar veitingar í boði.

Aðgangur er ókeypis – en sætafjöldi er takmarkaður og búast má við mikilli eftirspurn.

 Tryggðu þér sæti strax:
Skráðu þig hér