LADY litadagar

Litahönnun skapar minninga sem lifa

Litir sem við berum með okkur. Fyrsta skrefið á hverju ferðalagi felst oft í að horfa til baka - til upphafsins, rótanna og staðanna sem lifa með okkur löngu eftir að við höfum haldið áfram. Stigagangur baðaður síðdegisbirtu. Litbrigði sem var eðlilegur hluti hversdagsins. Mjúkir jarðlitir vekja tilfinningu fyrir heimkynnum. Með frísklegum gulum lit og dempuðum grænum skapa hlýir litir á borð við terrakotta og djúpan rauðbrúnan lit tilfinningu um að eiga heima. Litatafla sem leiðir þig heim.

LADY Iconic – Ný vara

LADY Iconic sameinar einstaklega fallega, matta áferð og mikið slitþol. Málningin er bletta- og óhreinindafráhrindandi, auðveld í þrifum og þolir vel óhreinindi frá húsgögnum, skóm og daglegri notkun. Tilvalin þar sem þú vilt fá glæsilegt, matt útlit án þess að fórna endingu.

LADY Pure color

Lady Pure Color er hágæða málning með silkimjúkri áferð og náttúrulegum ljóma sem lýsir upp rýmið. Hún þekur vel, kemur í fjölbreyttum litum og er auðveld í viðhaldi með mótstöðu gegn óhreinindum. Fullkomin fyrir þá sem vilja endingargóða og glæsilega málningu sem bætir bæði útlit og stemmingu heimilisins.

LADY New Era – Ný vara

LADY New Era er hágæða innanhússmálning sem gefur veggjum fallega, matta og jafna áferð. Hún er auðveld í notkun, hefur góða þekju og skilar fáguðu yfirbragði sem dregur litina fallega fram. Frábær kostur þegar þú vilt endurnýja rýmið og skapa stílhreint og nútímalegt útlit.

LADY Embrace

LADY Embrace er hágæða innanhússmálning sem gefur veggjum fallega, silkimatta og jafna áferð. Hún er auðveld í notkun, hefur góða þekju og skilar fáguðu yfirbragði sem lætur litina njóta sín. Frábær kostur fyrir heimilið þegar þú vilt skapa hlýlegt, vandað og tímalaust útlit.