- Nánari upplýsingar
Á nýju heimili á allt að vera eins og best verður á kosið. Organic Silent er hönnunargólfefni sem sameinar fallegt útlit, þægindi og vandaða hönnun – þróað fyrir nútímaheimili þar sem gerðar eru miklar kröfur til bæði virkni og útlits. Hljóðdempandi korkundirlagið dregur úr hávaða og stuðlar að rólegra umhverfi, á meðan náttúrulegt yfirborðið með 3D-áferð gefur gólfinu hlýlegt og einkennandi yfirbragð. Gólfið er vatnsþolið, auðvelt í viðhaldi og einfalt í uppsetningu með smellukerfi. Annar stór kostur er að gólfið dregur úr hljóði um meira en 40% samanborið við hefðbundin lagskipt gólfefni (laminate). Organic Silent er vottað með Blue Angel og PEFC, sem staðfestir litla losun efna og ábyrga öflun hráefna. Langir og breiðir plankar með auðveldu yfirborði í viðhaldi. Korkundirlag sem stuðlar að bættri hljóðvist og auknum þægindum. Vatnsþolin uppbygging og sérstaklega þétt 1clic2go PURE+ smellukerfi. Hægt að leggja á stór samfelld svæði, allt að 20 × 20 metra. PEFC-vottað (ábyrg skógrækt) og með Blue Angel umhverfisvottun (lítil losun og strangar umhverfiskröfur) Framleitt í Evrópu