- Nánari upplýsingar
Dana Lim Cool Tack 286
Dana Lim Cool Tack 286 er hlutlaust, lyktarlaust og rakaherðandi lím sem byggir á nýstárlegri Cool Cure tækni. Þessi tækni gerir efninu kleift að taka sig við mjög lágt hitastig, eða allt niður í -15°C, sem gerir það að verkum að hægt er að vinna með það árið um kring við íslenskar aðstæður.
Límið er sérstaklega hannað fyrir festingu á speglum, klæðningum, loftplötum og þaksteinum þar sem krafist er mikils styrks og fljótlegrar herðingar. Það inniheldur hvorki leysiefni né þalöt og helst teygjanlegt eftir þornun til að taka upp hreyfingar í byggingarhlutum án þess að límingin gefi eftir.
Helstu eiginleikar:
- Cool Cure tækni: Herðist í allt að -15°C hita, sem gerir vinnu í frosti mögulega.
- Fjölhæfni: Frábær viðloðun við tré, gler, steypu, málma, PVC og flestar gerðir gúmmís.
- Umhverfisvottanir: Emicode EC1 PLUS, M1, EPD og leyfilegt í Svansvottuðu húsi.
- Styrkur: Myndar mjög sterka límingu með ca. 60 Shore A hörku.
- Veðurþol: Frábært þol gegn útfjólubláum geislum og öðrum umhverfisáhrifum.
Tæknilegar upplýsingar:
- Framleiðandi: Dana Lim
- Gerð: Cool Tack 286
- Hitaþol: -40°C til +90°C
- Hörku: ca. 60 Shore A
- Vinnsluhitastig: Allt niður í -5°C (herðist niður í -15°C)
- Vottanir: EC1 PLUS, M1, BREEAM-NOR, EPD, Svanurinn (skráð í gagnagrunn)