Sólhlífartré – Polyscias

Fallegt, harðgert og þurftarlítið stofutré eða runni sem er milli 60 og
130 sentímetra á hæð. Ræktað vegna vaxtarlagsins og blaðanna.

Lágvaxið sígrænt stofutré eða runni með hringlaga dökkgrænum,
stakstæðum og lítillega tenntum blöðum. Stór ættkvísl sem telur um
180 villtar tegundir sem allar finnast í hitabelti Suðaustur-Asíu og
eyjum í Kyrrahafinu. Sex tegundir algengar í ræktun sem stofuplöntur
auk ýmissa yrkja með ólíkum blaðlit, grænum eða með hvítum
skellum. Ræktað vegna blaðanna og blómstrar sjaldan.

Þrífst vel á björtum stað en ekki beinni sól við venjulegum stofuhita,
18 til 29°C og en þolir illa dragsúg og snöggar hitabreytingar.

Þarf ekki mikla vökvun og gott að leyfa efstu þremur til fimm
sentímetrum moldarinnar að þorna milli vökvana. Gott að úða með
volgu vatni kringum plöntuna reglulega. Dafnar best í sandbönduðum
moldarjarðvegi og gott að vökva með vægri áburðarblöndu á þriggja
viknafresti yfir sumarið. Þolir ekki að standa í vatni því þá rotna
ræturnar.

Íhaldssamar plöntur sem vilja standa lengi á sama stað og blöðin geta
fallið af sé mikið verið að skottast með þær milli staða.

Í heimkynnum sínum eru ungblöð og greina sumra tegunda kokkaðar
og hafðar til matar og lækninga

Tilheyrir Araliaceae eða bergfléttuætt og ættkvíslarheitið polycasia úr
grísku, polys og skias, og þýða mörg og skuggi og vísa til þess hversu
margblaða plantan er.

- Vilmundur Hansen.