Sífellt er algengara að tré séu gróðursett að hausti enda ekkert því til fyrirstöðu þar sem rætur trjánna halda áfram að vax þrátt fyrir að ofanjarðarvöxturinn sé hættur.

Kosturinn við að gróðursetja að hausti er að plönturnar ná að festa rætur og verða tilbúin til að hefja ofanjarðarvöxt strax næsta vor.

Við gróðursetningu trjáplantna, sama á hvaða árstíma, skiptir mestu að rétt sé staðið að verki, að vinnubrögð séu vönduð og að eingöngu sé plantað út góðum og hraustum plöntum.

Meðan á gróðursetningu stendur skal gæta þess að plönturnar verði fyrir sem minnstu hnjaski og að moldin haldist sem mest á rótunum. Rætur plantna þola illa sólarljós og útfjólubláir geislar sólarinnar fara illa með þær. Því má ekki líða langur tími frá því að berrótarplöntur eru teknar upp eða plöntur teknar úr potti þar til þær eru settar niður.

Sé nauðsynlegt að geyma plönturnar áður en þær eru gróðursettar skal koma þeim fyrir á skuggsælum stað og vökva vel. Best er að gróðursetja tré og runna áður en vöxtur hefst á vorin og strax eftir að frost fer úr jörðu, eða á haustin eftir að hæðarvexti plantnanna lýkur.

Eftir að hæðar- og laufvexti lýkur á sumrin og brum hafa náð að þroskast setja plöntur mikinn kraft í rótarvöxtinn. Það er tilvalið að nota haustið til að gróðursetja eða flytja tré.

Eftir gróðursetningu að hausti er gott að setja þokkalegan stein við hliðina á litlum trjám. Hann kemur í veg fyrir frostlyftingu og veitir trénu skjól og yl. Stærri tré verður að festa niður með staur til að koma í veg fyrir að þau fjúki um koll.

Fyrir gróðursetningu skal stinga upp beð eða holu í hæfilegri dýpt fyrir tréð eða runnann og nauðsynlegt er að bæta lífrænum áburði í jarðveginn til að gera hann safaríkari fyrir plöntuna. Æskileg dýpt beða fyrir tré og runna er 40 til 50 sentímetrar eða tvær til þrjár skóflustungur.

Varast skal að gróðursetja plöntur í dældir á flatlendi þar sem vatn gæti safnast fyrir. Aldrei má gróðursetja tré dýpra en þau stóðu áður, undantekning frá þessu er ösp og viðir.

Gott er að lyfta jarðveginum upp í svolítinn kúf og gróðursetja í hann þannig að rótarháls plöntunnar nemi við hæstu holubrún. Greiða skal ræturnar út í holuna eins og hægt er og gæta þess að plönturnar standi lóðréttar í holunni. Síðan er mold mokað að og þjappað varlega að rótunum þannig að plönturnar standi vel og séu ekki lausar í jarðveginum.

Séu tré orðin meira en einn og hálfur metri á hæð er nauðsynlegt að setja staur niður með þeim sem stuðning fyrstu árin á meðan þau eru að ræta sig og koma sér fyrir. Eftir að plöntunni hefur verið komið fyrir á sinn stað þarf að vökva vel og gæta þess næstu daga að ræturnar þorni ekki.

- Vilmundur Hansen.