Áhugaverður blendingur
Sorbus x Burka er áhugaverður blendingur milli tveggja tegunda af
sitt hvorri ættkvíslinni en innan rósaættar. Tegundirnar sem um ræðir
eru ilmreynir (Sorbus aucuparia) og logalauf (Aronia melancarpa) og
afkvæmið nefnist logareymir.
Blendingurinn er stórvaxinn og bústinn runni, tveir til þrír metrar á
hæð og líkist báðum tegundum. Blöðin stór og líkjast blöðum reynis
og verða logarauð á haustin. Blómgast snemma og blómin
sjálffrjóvgandi, hvít og mörg saman í stórum sveip. Berin eru stór og
safarík og þroskast snemma, fjólublá á litinn, sæt á bragðið og vel æt
hvort sem er beint af trénu eða sultuð.
Harðgerð tegund sem dafnar vel hér á landi á sólríkum stað og gerir
ekki miklar kröfur til jarðvegs en dafnar best í vel framræstum og
aðeins súrum jarðvegi.
Blendingurinn kom fram á sjónarsviðið árið 1918 og er afrakstur
tilrauna rússneska plöntukynbótamannsins Ivan Vladimirovich
Michurin. Auk logareynis er sagt að Michurin hafi búið til yfir 300
tegundir ávaxtatrjáablendinga sem margir eru í ræktun í dag.
