- Nánari upplýsingar
Cozze yfirbreiðsla fyrir 17" pítsuofna og 500-línuna
Cozze yfirbreiðslan er hönnuð til þess að verja pítsuofninn gegn vindi, veðri og hvers kyns utanaðkomandi óhreinindum á borð við laufblöð og köngulóarvefi. Með því að nota yfirbreiðsluna helst ofninn hreinn og tilbúinn til matreiðslu jafnskótt og pítsulöngunin lætur á sér kræla.
Yfirbreiðslan er framleidd úr svörtu 600D OXFORD pólýesterefni og gædd innbyggðri UV-vörn gegn sólargeislum. Að innanverðu er hún PVC-húðuð til að tryggja áreiðanlega regnvörn. Athugið að yfirbreiðslan er fyrst og fremst ætluð til verndar á grilltímabilinu en ekki sem varanleg geymslulausn utandyra, og því er mælt með því að geyma búnaðinn innandyra yfir vetrarmánuðina til að tryggja sem besta endingu.
Helstu eiginleikar:
- Vörn í veðri: Verndar gegn rigningu, vindi, laufblöðum og óhreinindum
- Efnisval: Svart 600D OXFORD efni úr 100% pólýester
- Vatnsvörn: PVC-húðun að innanverðu fyrir aukna vörn gegn regni
- UV-vörn: Varið gegn útfjólubláum geislum sólarinnar
Tæknilegar upplýsingar:
- Framleiðandi: Cozze
- Gerð: Yfirbreiðsla fyrir 17" pítsuofna og 500-línuna
- Hentar fyrir: 17” pítsuofna, Plancha 500, G-500 og E500
- Mál: 61,5 x 61,5 x 28,5 cm
- Litur: Svartur
- Efni: 100% pólýester með PVC-húðun